Afhjúpa síðasta leikinn með streymi

The Sims 4.
The Sims 4. Grafík/Electronic Arts

Maxis, framleiðsluverið á bakvið Sims 4, sagði þrjá nýja aukapakka væntanlega í maí og júní, þar af tveir efnispakkar og einn leikjapakki.

Efnispakkarnir tveir voru kynntir seint í maí og gefnir út nokkrum dögum síðar. Þriðji aukapakkinn hinsvegar, leikjapakkinn, verður opinberaður síðar í dag með streymi.

Maxis hefur strítt leikjunum þremur með því að benda á tunglsljósið, hver maður sé raunverulega þegar tekur að dimma og fleira í þá áttina. Í kjölfarið fóru netverjar af stað með sögusagnir, en þeir telja sig eiga von á varúlfum með næsta aukapakka.

Kynt undir sögusögnum

Klukkan 15:00 í dag verður leikjapakkinn kynntur með beinu streymi á YouTube. Þá verður skorið úr um hvort varúlfar séu á leiðinni í heim Simsverja, eða eitthvað annað.

„Ertu tilbúinn að sleppa fram af þér beislinu?“ segir í fyrirsögn streymisins.

„Nýr pakki rís fljotlega. Stilltu þig inn á streymið klukkan 15:00 þann 2. júní til þess að fá smjörþefinn af þeim sem þú gætir orðið þegar tekur að myrkva,“ segir um streymið sem virðist kynda undir sögusögnum um leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert