Neymar segir Barcelona skulda sér pening

Neymar er orðinn leikmaður PSG.
Neymar er orðinn leikmaður PSG. AFP

Dýrasti knattspyrnumaður sögunnar, Neymar, íhugar að koma með formlega kvörtun til FIFA vegna 25 milljóna evra sem hann telur Barcelona skulda sér. Brasilíumaðurinn gekk á dögunum í raðir PSG frá Barcelona. 

Neymar skrifaði undir nýjan samning við Barcelona á síðasta ári og hefði hann átt að fá 23 milljónir evra frá félaginu í byrjun ágúst, en spænska félagið hefur ekki borgað honum summuna. 

Talsmaður Barcelona sagði í dag að félagið hafði engan áhuga á að borga honum 23 milljónirnar, vegna þess að hann var augljóslega búinn að ákveða að yfirgefa félagið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert