Sex leikmenn Lyon á meðal tíu efstu

Saki Kumagai frá Japan og danski framherjinn Pernille Harder eigast …
Saki Kumagai frá Japan og danski framherjinn Pernille Harder eigast við í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. AFP

FIFA tilkynnti í dag þá tíu leikmenn sem koma til greina sem knattspyrnumenn ársins í kvennaflokki. Verðlaunin verða veitt í London 24. september næstkomandi. 

Lyon varð Evrópumeistari þriðja árið í röð á síðustu leiktíð og eru leikmenn liðsins áberandi. Sex af tíu leikmönnum sem tilnefndir eru leika með liðinu. 

Marta, ein besta knattspyrnukona allra tíma er einnig tilnefnd, sem og Pernille Harder, liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Wolfsburg í Þýskalandi. 

Tilnefndar eru: 
Lucy Bronze, Lyon
Pernille Harder, Wolfsburg
Ada Hegerberg, Lyon
Amandine Henry, Lyon
Samantha Kerr, Sky Blue
Saki Kumagai, Lyon
Dzsenifer Marozsán, Lyon
Marta, Oprlando Pride
Megan Rapinoe, Seattle Reign
Wendie Renard, Lyon

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert