Hinn átján ára gamli Englendingur Jadon Sancho hefur verið valinn besti leikmaður þýsku Bundesligunnar í knattspyrnu í októbermánuði en hann hefur slegið hressilega í gegn með liði Dortmund.
Dortmund keypti Sancho af Manchester City fyrir tíu milljónir punda á síðasta ári og hann hefur látið verulega að sér kveða. Í þremur leikjum liðsins í október skoraði hann þrjú mörk og lagði eitt upp en Dortmund er á toppi deildarinnar. Sancho hefur lagt upp sex mörk á tímabilinu og á flestar stoðsendingar allra í deildinni.
Þá lék Sancho sinn fyrsta A-landsleik fyrir Englands hönd gegn Króatíu í síðasta mánuði. Hann var síðan í fyrsta skipti í byrjunarliði Englands í gærkvöld í 3:0 sigri á Bandaríkjamönnum.