Glódís hélt enn og aftur hreinu

Glódís Perla Viggósdóttir fær varla á sig mark.
Glódís Perla Viggósdóttir fær varla á sig mark. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Glódís Perla Viggósdóttir og samherjar hennar hjá Rosengård þurftu að sætta sið við markalaust jafntefli gegn Växjö á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Þrátt fyrir úrslitin er Rosengård enn í toppsætinu með 31 stig, tveimur stigum meira en Gautaborg. Glódís lék allan leikinn fyrir Rosengård og er liðið búið að halda hreinu í níu af fyrstu fjórtán leikjum sínum á tímabilinu. 

Andrea Thorisson, sem á íslenskan föður og móður frá Perú, var allan tímann á varamannabekk Limhamn Bunkeflo. Andrea hefur leikið með U17 og U19 ára landsliðum Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert