Sara og Wolfsburg í vænlegri stöðu

Sara Björk Gunnarsdóttir vinnur og vinnur með Wolfsburg.
Sara Björk Gunnarsdóttir vinnur og vinnur með Wolfsburg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar hennar í Wolfsburg geta nánast byrjað að fagna sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 6:0-sigur á heimavelli gegn Twente í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum í dag. 

Sara var í byrjunarliði Wolfsburg og fór af velli stundarfjórðungi fyrir leikslok í stöðunni 4:0. Wolfsburg fór í úrslitaleik keppninnar tvö ár í röð, 2017 og 2018, en tapaði í bæði skiptin fyrir Lyon. Wolfsburg tapaði svo fyrir Lyon í átta liða úrslitum á síðustu leiktíð. 

Wolfsburg er búið að vinna nítján síðustu leiki sína og aðeins fengið tvö mörk á sig. Síðari leikurinn gegn Twente fer fram í Hollandi eftir tvær vikur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert