Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, kveðst hafa skoðað vel viðureign Tottenham og Bayern München í Meistaradeildinni í vetur þegar Bayern vann 7:2 sigur í London. Chelsea tekur á móti Bayern í 16-liða úrslitunum á Stamford Bridge í kvöld.
„Við eigum eftir að lenda í vandræðum einhvern tíma í þessum tveimur leikjum því Bayern er ótrúlegt lið þegar það er með boltann en það verður krefjandi að leysa það,“ sagði Lampard á fréttamannafundi í gærkvöld.
Í hinum leik kvöldsins mætast Napoli og Barcelona en báðar viðureignirnar hefjast klukkan 20. Þetta eru fyrri leikir liðanna í sextán liða úrslitunum.