Markaskorarinn ekki með í fjórðungsúrslitunum

Sergio Agüero verður ekki með í kvöld.
Sergio Agüero verður ekki með í kvöld. AFP

Sergio Agüero verður ekki með Manchester City sem mætir Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld en hann er meiddur á hné.

Argentínumaðurinn, 32 ára, hefur skorað 23 mörk í 32 leikjum fyrir City í öllum keppnum á tímabilinu og verður því sárt saknað. Pep Guardiola, stjóri liðsins, sagði við BBC að óvíst væri hvort hann gæti tekið þátt í undanúrslitunum, komist liðið þangað.

Ef City vinnur franska liðið í kvöld mætir það þýsku meisturunum Bayern München í undanúrslitum. Bæjarar niðurlægðu stórlið Barcelona í gærkvöldi, 8:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert