Arsenal áfram eftir framlengingu

Emile Smith Rowe kemur Arsenal yfir.
Emile Smith Rowe kemur Arsenal yfir. AFP

Arsenal er komið í 32-liða úrslit enska bikarsins í fótbolta eftir 2:0-sigur á Newcastle á heimavelli í kvöld. 

Newcastle fékk bestu færin til að skora í venjulegum leiktíma en Andy Carroll nýtti tvö úrvalsfæri illa. Hinum megin stóð Martin Dúbravka vaktina vel í marki Newcastle og var staðan eftir venjulegan leiktíma markalaus. 

Fyrsta markið kom loks á 109. mínútu og það gerði varamaðurinn Emile Smith Rowe með skoti í stöng og inn úr teignum. Átta mínútum síðar bætti fyrirliðinn Pierre-Emerick Aubameyang við marki og tryggði Arsenal sigur. 

Brentford úr B-deildinni er einnig komið áfram eftir 2:1-sigur á Middlesbrough og Plymouth úr C-deild er komið áfram eftir 3:2-sigur á útivelli gegn Huddersfield úr B-deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert