Leikmenn slógust við stuðningsmenn

Stuðningsmenn Trabzonspor ráðast á leikmenn Fenerbahce.
Stuðningsmenn Trabzonspor ráðast á leikmenn Fenerbahce. AFP/DHA

Allt sauð upp úr er Fenerbahce sigraði Trabzonspor á útivelli, 3:2, í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Eftir leik fögnuðu leikmenn Fenerbahce vel og innilega en stuttu síðar mátti glitta í nokkra stuðningsmenn Trabzonspor sem hlupu inn á völlinn. 

Urðu þeir svo fleiri og fleiri og réðust á leikmenn og starfsfólk Fenerbahce sem þurftu að hlaupa inn til búningsklefa. 

Myndskeið af atvikinu má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert