Mun yfirgefa Arsenal í sumar

Cedric Soares hefur fengið fá tækifæri á tímabilinu.
Cedric Soares hefur fengið fá tækifæri á tímabilinu. AFP/Darren Staples

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cedric Soares mun yfirgefa herbúðir enska félagsins Arsenal næsta sumar. 

Samningur Portúgalans rennur út í sumar og mun hann þá róa á önnur mið samkvæmt hinum áreiðanlega Fabrizio Romano. 

Cedric hefur verið í litlu sem engu hlutverki hjá Arsenal undanfarin tvö tímabil en hann gekk til liðs við félagið frá Southampton árið 2020. 

Romano bætir jafnframt við að mörg félög hafa áhuga á að fá leikmanninn á frjálsri sölu næsta sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert