Liðsfélagi Íslendinganna með óvæntan hæfileika

Georgia Stanway er lykilmaður hjá Bayern München og enska landsliðinu.
Georgia Stanway er lykilmaður hjá Bayern München og enska landsliðinu. AFP/Steve Christo

Ensku knattspyrnukonunni Georgiu Stanway er greinilega margt til lista lagt. Auk þess að vera lykilmaður þýska stórliðsins Bayern München er hún liðtækur húðflúrari.

Stanway verður til viðtals í vefþættinum Out of office á Youtube-síðu BBC Sport í kvöld, þar sem hún ræðir um ástríðu sína utan knattspyrnunnar.

Í þættinum verður fylgst með því er Stanway húðflúrar aðra manneskju í fyrsta sinn.

„Að húðflúra er orðinn stór hluti af lífi mínu,“ sagði hún í kitlu fyrir þáttinn, sem má sjá hér.

Liðsfélagar Stanway hjá Bayern eru fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir, auk þess sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er á mála hjá félaginu og leikur sem stendur á láni hjá Bayer Leverkusen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert