Aníta og Arnar sigruðu í ÍR hlaupi

Arnar Pétursson, ÍR var fyrstur í mark, aðeins sekúndu á …
Arnar Pétursson, ÍR var fyrstur í mark, aðeins sekúndu á undan næsta manni. Mynd/Kristinn Ingvarsson

Arnar Pétursson og Aníta Hinriksdóttir, bæði hjá ÍR, sigruðu í flokk kvenna og karla í hundraðasta Víðavangshlaupi ÍR sem fram fór í miðborg Reykjavíkur í dag. Þau urðu um leið Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi.

Fyrst þrír í karlaflokki voru:

1 - 15:35  Arnar Pétursson, ÍR.
2  - 15:36  Ingvar Hjartarson, Fjölnir.
3  - 15:50  Sæmundur Ólafsson, ÍR.

Fyrstu þrjár í kvennaflokki voru:

1  - 17:10   Aníta Hinriksdóttir, ÍR
2  - 18:36   María Birkisdóttir, ÍR.
3 - 18:43    Jóhanna Skúladóttir Ólafs, KR-skokki.

Metþátttaka var í Víðavangshlaup ÍR þar sem 1171 hlauparar luku hlaupi, en 1205 voru skráðir til leiks. Mest hefur fjöldi í Víðavangshlaupi ÍR til þessa eru 535 en það var árið 2014. Hlaupið er 5 km langt og fór fram í miðbæ Reykjavíkur þar sem meðal annars var hlaupið upp Hverfisgötuna og niður Laugaveginn. Í tilefni 100. Víðavangshlaupsins var þátttakendum boðið til grillveislu við Hörpuna að loknu hlaupi.

ÍR-ingar hafa fagnað sumri 100. ár í röð með því að halda Víðavangshlaup ÍR. Hlaupið er elsta hlaup landsins og með elstu almenningshlaupum í Evrópu. Aldrei hefur fallið úr hlaup og er Víðavangshlaup ÍR einn af þeim íþróttaviðburðum sem eiga sér lengsta samfellda sögu hér á landi. 

Aníta Hinriksdóttir kemur hér fyrst í mark í kvennaflokki.
Aníta Hinriksdóttir kemur hér fyrst í mark í kvennaflokki. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Aníta sigraði í kvennaflokki.
Aníta sigraði í kvennaflokki. Mynd/Kristinn Ingvarsson
Sigurvegararnir í karlaflokki.
Sigurvegararnir í karlaflokki. Mynd/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert