Bætti 36 ára gamalt Íslandsmet

Hlynur Andrésson kom 27. í mark í Parrellopp-hlaupinu í Hollandi …
Hlynur Andrésson kom 27. í mark í Parrellopp-hlaupinu í Hollandi í dag á nýju Íslandsmeti. Ljósmynd/Scott W. Grau

Langhlauparinn Hlynur Andrésson setti nýtt Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í Parrelloop-hlaupinu í Hollandi í dag en Hlynur hljóp á tímanum 29:49 mínútum og varð um leið fyrsti Íslendingurinn til þess að hlaupa 10 km í götuhlaupi undir 30 mínútum. 

Hlynur kom 27. í mark í hlaupinu í dag en Mande Buschendich frá Úganda fór með sigur af hólmi á tímanum 27:56 mínútum. Fyrra metið í 10 km götuhlaupi átti Jón Diðriksson sem hann setti í Þýskalandi árið 1983 og var 30:11 mínútur.

Hlynur á einnig Íslandsmetið í 10.000 metra hlaupi á hlaupabraut. Það setti hann í Raleigh í Bandaríkjunum í mars í fyrra og er það 29:20,92 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert