Sigraði þótt honum hafi verið vísuð lengri leið

Arnar Pétursson í markinu í mótslok.
Arnar Pétursson í markinu í mótslok. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Arnar Pétursson úr Breiðabliki og Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR sigruðu í karla- og kvennaflokkum í Víðavangshlaupi ÍR sem haldið var í miðborg Reykjavíkur nú í hádeginu og urðu um leið Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi.

Arnar hljóp lengri leið að marki en til stóð en honum var vísuð röng leið að markinu. Frjálsíþróttadeild ÍR hefur sent frá sér tilkynningu og harmað mistökin, sem hafi haft áhrif á Arnar og þau markmið sem hann hafði sett sér. Sigur hans var hins vegar staðfestur, sem og að hann hafi verið innan brautar.

Arnar hljóp vegalengdina á 15,23 mínútum og var þrátt fyrir mistökin 27 seskúndum á undan næsta manni, Þórólfi Inga Þórssyni, sem hljóp á 15,50 mínútum. Kristinn Þór Kristinsson frá  Selfossi varð þriðji á 15,56 mínútum.

Andrea hljóp vegalengdina á 17,16 mínútum. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr UFA varð önnur á 18,04 mínútum og Anna Berglind Pálmadóttir úr UFA þriðja á 18,23 mínútum.

Hlaupararnir fara af stað með Arnar Pétursson fremstan í flokki.
Hlaupararnir fara af stað með Arnar Pétursson fremstan í flokki. mbl.is/Sigurður Ragnarsson
Verðlaunahafarnir í kvennaflokki, Andrea Kolbeinsdóttir, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, og Anna …
Verðlaunahafarnir í kvennaflokki, Andrea Kolbeinsdóttir, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, og Anna Berglind Pálmadóttir. mbl.is/Sigurður Ragnarsson
Verðlaunahafarnir í karlaflokki, Kristinn Þór Kristinsson, Arnar Pétursson og Þórólfur …
Verðlaunahafarnir í karlaflokki, Kristinn Þór Kristinsson, Arnar Pétursson og Þórólfur Ingi Þórsson. mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert