Verður áfram fyrirliði Evrópuúrvalsins

Luke Donald fagnar með Ryder-bikarinn.
Luke Donald fagnar með Ryder-bikarinn. AFP/Andreas Solaro

Luke Donald verður fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi en næsta keppni fer fram í New York í Bandaríkjunum árið 2025.

Donald, sem er 44 ára gamall, var fyrirliði Evrópu þegar liðið vann öruggan sigur gegn Bandaríkjunum í október á þessu ári á Marco Simone-vellinum í Róm á Ítalíu.

Evrópa vann með 16 1/2 vinningi gegn 11 1/2 vinningi Bandaríkjanna en Bandaríkin hafa ekki unnið keppnina á útivelli í 31 ár eða síðan árið 1992.

Donald var efsti maður heimslistans í golfi í 56 vikur á árunum 2011 til ársins 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert