Aðalheiður mætt til leiks

Aðalheiður Hreinsdóttir í hraðaupphlaupi í kappleik með Vals og Stjörnunnar …
Aðalheiður Hreinsdóttir í hraðaupphlaupi í kappleik með Vals og Stjörnunnar á síðasta ári. mbl.is/Árni Sæberg

Aðalheiður Hreinsdóttir hefur ákveðið að leika með handknattleiksliði Vals á nýjan leik eftir að hafa dvalið í Bandaríkjunum frá síðasta sumri. Aðalheiður hefir skrifað undir samning við Val sem gildir fram á næsta ár. 

Aðalheiður, sem er 26 ára gömul, hefur leikið með handknattleiksliði Vals um árabil og var m.a. í Íslandsmeistaraliðinu vorið 2014.  Hún er gjaldgeng nú þegar með Valsliðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert