Perla Ruth í 17 manna landsliðshóp

Perla Ruth Albertsdóttir, gæti leikið sinn fyrsta landsleik.
Perla Ruth Albertsdóttir, gæti leikið sinn fyrsta landsleik. mbl.is/Árni Sæberg

Axel Stefánsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta hefur valið 17 leikmenn til að taka þátt í æfingum og leikjum í Reykjavik og Kaupmannahöfn 24.-30. júlí.

Liðið mun þrjá fyrstu dagana æfa í Reykjavík en ferðast svo til Kaupmannahafnar, þar sem spilað verður við danska liðið Köbenhavn HB og sænska meistaraliðið H65 Höör. Auk þess verður æft með danska liðinu.

Leikirnir eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni EM sem hefst í haust, með leikjum gegn Danmörku og Tékklandi í lok september. Tveir leikmenn eru í hópnum sem ekki hafa leikið landsleik áður, Andrea Jacobsen hjá Fjölni og Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi. 

Nafn - félag - Leikir / mörk:
Andrea Jacobsen, Fjölnir, 0/0
Birna Berg Haraldsdóttir, Århus United, 43/80
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Haukar, 10/0
Eva Björk Davíðsdóttir, Sola HK, 9/3
Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram, 32/1
Hafdís Renötudóttir, Stjarnan, 2/0
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan, 11/7
Hildigunnur Einarsdóttir, Leipzig, 72/76
Karen Knútsdóttir, Nice, 86/310
Lovisa Thompson, Grótta, 5/4
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss  0/0
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram  9/7
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg  24/37
Thea Imani Sturludóttir, Fylkir  12/8
Unnur Ómarsdóttir, Grótta 28/28
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, 21/11
Þórey Rósa Stefánsdóttir, 78/194


Varamenn:
Stefanía Theodórsdóttir Stjarnan
Díana Kristín Sigmarsdóttir, ÍBV
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Haukar
Elena Birgisdóttir, Stjarnan

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert