Óðinn með íslenska töfra (myndband)

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði magnað mark.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði magnað mark. Ljósmynd/IHF

Handboltamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson hefur farið nokkuð vel af stað með GOG í Danmörku, en hann gekk til liðs við félagið frá FH fyrir leiktíðina. 

Hornamaðurinn skoraði þrjú mörk í 32:29-tapi á útivelli fyrir Skandeborg á laugardaginn var, en eitt markið hefur vakið töluvert meiri athygli en hin tvö. 

Óðinn fór svellkaldur í hraðaupphlaup og skoraði ótrúlegt mark, sem Rasmus Boysen, leikmaður Ribe-Esbjerg var afar hrifinn af. Svo hrifinn að hann ákvað að deilda myndbandi af markinu á Twitter-reikningi sínum. Boysen segir að um íslenska töfra sé um að ræða. 

Þetta magnaða mark má sjá í myndskeiðinu hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert