Oddur Gretarsson fór á kostum fyrir Balingen er liðið lagði Emsdetten, 31:29, á heimavelli í B-deild Þýskalands í handbolta í kvöld. Oddur skoraði tíu mörk úr tíu skotum og var markahæsti maður vallarins.
Með sigrinum fór Balingen upp að hlið toppliðsins Coburg. Þau eru bæði með 27 stig eftir 17 leiki og eru í góðri stöðu í baráttunni um sæti í efstu deild.
Ragnar Jóhannsson átti góðan leik fyrir Hüttenberg í 27:27-jafntefli á útivelli gegn N-Lübbecke. Hüttenberg er í tíunda sæti með 16 stig.