Sænsk handknattleikskona í Hafnarfjörðinn

Zandra Jarvin.
Zandra Jarvin. Ljósmynd/Christoffer Borg Mattisson

Handknattleikslið FH hefur fengið liðsstyrk fyrir veturinn en sænska handknattleikskonan Zandra Jarvin hefur gert tveggja ára samning í Hafnarfirðinum. Þetta var staðfest í fréttatilkynningu sem handknattleiksdeild FH sendi á fjölmiðla í dag.

Zandra er tvítug og spilar sem leikstjórnandi en hún hefur undanfarin ár leikið með Spårvägen í sænsku C-deildinni. Sömuleiðis á hún fjölda leikja með yngri landsliðum Svía.

„Við FH-ingar erum svakalega spenntir fyrir þessum leikmanni,“ er haft eftir Ásgeiri Jónssyni, formanni handknattleiksdeildar FH. „Við höfum séð fjölmarga leiki með henni og fær hún einnig mjög góð meðmæli frá þjálfurum í Svíþjóð. Hún mun án efa styrkja okkur verulega. Við ætlum okkur góða hluti í Olísdeildinni næsta vetur og munum áfram byggja á þeim ungu og öflugu stelpum sem hafa fengið sviðið í fyrstu deildinni undanfarin ár en eru núna tilbúnar á stóra sviðið í Olísdeildinni. Það eru spennandi tímar framundan hjá meistaraflokki kvenna en markmiðið er að styrkja liðið enn frekar fyrir átökin í haust," sagði Ásgeir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert