Frá keppni næstu 6-9 vikurnar

Dagur Gautason verður frá keppni næstu vikurnar.
Dagur Gautason verður frá keppni næstu vikurnar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Handknattleiksmaðurinn Dagur Gautason mun ekki leika með Stjörnunni næstu sex til níu vikurnar vegna meiðsla. Handbolti.is greindi frá. 

Dagur gekk í raðir Stjörnunnar frá KA fyrir leiktíðina og mun hann m.a. missa af leik Stjörnunnar við sína gömlu félaga næstkomandi föstudagskvöld. 

Dagur tognaði í hné í leiknum gegn Haukum síðastliðinn föstudag og gæti verið frá allt þar til í desember. Hornamaðurinn er markahæsti leikmaður Stjörnunnar á tímabilinu með 15 mörk í fyrstu þremur leikjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert