Alexander ætlar að ljúka ferlinum á Íslandi

Handboltamaðurinn Alexander Petersson hefur skrifað undir hjá Val.
Handboltamaðurinn Alexander Petersson hefur skrifað undir hjá Val. Skjáskot/Valur

Handboltamaðurinn Alexander Petersson hefur skrifað undir eins árs samning við Val og mun leika á Hlíðarenda á næsta tímabili.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valsmönnum. 

Alexander, sem er 43 ára gamall, lék síðast með Melsungen í Þýskalandi áður en hann ákvað að leggja handboltaskóna á hilluna vorið 2022. 

Alexander Petersson í leik með Rhein-Neckar Löwen.
Alexander Petersson í leik með Rhein-Neckar Löwen. Ljósmynd/Rhein-Necker Löwen

Samkvæmt tilkynningunni langar Alexander að ljúka ferlinum hér á Íslandi og hefur valið sér félag til þess að ljúka glæstum ferli sínum. Hann lék síðast hérlendis árið 2003 þegar hann lék með Gróttu/KR.

Alexander á að baki 186 landsleiki fyrir Ísland þar sem hann skoraði 725 mörk og var kjörinn íþróttamaður ársins árið 2010. Hann vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 með íslenska landsliðinu og til bronsverðlauna á EM í Austurríki árið 2010. Þá var hann valinn í úrvalslið heimsmeistaramótsins árið 2011.

Alexander Petersson í leik með landsliði Íslands.
Alexander Petersson í leik með landsliði Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Alexander lék í Þýskalandi í 19 ár og spilaði þar með Düsseldorf, Grosswallstadt, Flensburg, Füchse Berlín, Rhein-Neckar Löwen og síðast með Melsungen. Hann vann þýska meistaratitilinn með Löwen árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert