Haukur stórgóður í stórsigri

Haukur Þrastarson.
Haukur Þrastarson. Ljósmynd/Kristján Orri

Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson fór mikinn í útisigri Kielce á Legionowo, 31:23, í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. 

Haukur skoraði sex mörk fyrir Kielce-liðið en hann hefur hægt og rólega verið að finna sitt form. 

Kielce-liðið er með 24 sigra í 25 leikjum og á toppnum ásamt Wisla Plock sem er með sama árangur. Ein umferð er eftir af deildinni og síðan taka við átta liða úrslit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert