Sigvaldi gerði útslagið

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sigurmarkið.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sigurmarkið. Ljósmynd/EHF

Sigvaldi Björn Guðjónsson og liðsfélagar hans i Kolstad eru deildarmeistarar norska handboltans annað árið í röð. 

Liðið vann Elverum, 29:28, í toppslagnum en nú á Elverum ekki lengur möguleika að ná Kolstad að stigum þrátt fyrir að tveir leikir séu eftir. 

Sigvaldi Björn skoraði sigurmarkið er mínúta var til leiksloka. Þá fékk Kolstad víti, Sigvaldi steig á punktinn og skoraði. 

Liðið varð bikarmeistari á dögunum og á annan titil að verja í úrslitakeppninni sem hest að deildarkeppni lokinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert