Íslendingaliðið hársbreidd frá mögnuðum úrslitum

Oddur Gretarsson fór á kostum í dag.
Oddur Gretarsson fór á kostum í dag. Ljósmynd/Balingen

Topplið Füchse Berlin vann Íslendingaliðið Balingen, sem situr á botni deildarinnar, með naumindum, 35:34, í þýsku 1. deildinni í handbolta í Berlín í dag. 

Oddur Gretarsson átti magnaðan leik í liði Balingen en hann skoraði sjö mörk og var markahæstur maður liðsins. Daníel Þór Ingason skilaði einnig sínu en hann skoraði tvö mörk. 

Balingen er í slæmum málum í botnsæti deildarinnar með 11 stig, fimm stigum frá öruggu sæti. 

Nýliðar Guðjóns Vals í toppmálum

Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, vann þá góðan átta marka sigur á Stuttgart, 35:27, í Gummersbach. 

Arnór Snær Óskarsson skoraði eitt mark en Elliði Snær Viðarsson komst ekki á blað. 

Gummersbach er í sjöunda sæti deildarinnar með 28 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert