Skiptir um starf hjá Stjörnunni

Patrekur Jóhannesson.
Patrekur Jóhannesson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Patrekur Jóhannesson mun taka við sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik eftir yfirstandandi tímabil. 

Frá þessu greinir félagið í dag en Sigurgeir Jónsson þjálfari liðsins klárar tímabilið og lætur svo af störfum. 

Patrekur stýrði áður karlaliði félagsins en hætti þeim stöfum til að sinna öðrum innan Stjörnunnar. 

Patrekur var meðal fremstu handknattleiksmanna Íslands á sínum tíma. Lék hann 243 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði 634 mörk. 

Þá hefur hann stýrt ótal mörgum liðum og meðal annars austurríska landsliðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert