Níu íslensk mörk í Svíþjóð

Aldís Ásta, númer 3, átti enn og aftur góðan leik …
Aldís Ásta, númer 3, átti enn og aftur góðan leik fyrir Skara. Ljósmynd/Viktor Ljungström

Kristianstad vann í kvöld útisigur á Skara í Íslendingaslag í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Urðu lokatölur 29:25.

Alls litu níu íslensk mörk dagsins ljós í leiknum. Aldís Ásta Heimisdóttir gerði fjögur þeirra fyrir Skara. Jóhann Margrét Sigurðardóttir bætti við þremur. Haukakonan Berta Rut Harðardóttir skoraði tvö fyrir Kristianstad.

Fara bæði lið í átta liða úrslitakeppni. Kristianstad endaði í fimmta sæti með 26 stig eftir fjóra sigra í röð. Skara endaði í sjötta sæti með 23 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert