Hrafn hættir hjá KR

Hrafn Kristjánsson
Hrafn Kristjánsson mbl.is/hag

Hrafn Kristjánsson mun ekki stýra karlaliði KR í Dominos-deildinni í körfuknattleik á næsta keppnistímabili. Samningaviðræðum hans og félagsins hefur verið slitið eftir því sem fram kemur í yfirlýsingum frá körfuknattleiksdeild KR og Hrafni sjálfum.

KR-ingar leita nú að nýjum þjálfara en af yfirlýsingu Hrafns má draga þá ályktun að hann hafi átt frumkvæðið að því að slíta viðræðunum og einbeita sér að starfi á öðrum vettvangi. Hann mun áfram verða félaginu innan handar sem einhvers konar ráðgjafi. 

Yfirlýsing KR:

„Körfuknattleiksdeild KR og Hrafn Kristjánsson hafa komist að samkomulagi um að slíta samningaviðræðum varðandi endurnýjun samnings Hrafns við deildina fyrir komandi keppnistímabil og mun hann því ekki sjá um þjálfun meistaraflokks karla næstu leiktíð. Hrafn tók við báðum meistaraflokksliðum félagsins sumarið 2010 og náði frábærum árangri á sínu fyrsta ári hjá félaginu þegar hann vann Íslands-, Bikar- og Reykjavíkurmeistaratitil með meistaraflokki karla ásamt því að ná öðru sæti í Lengjubikarnum. Sama tímabil varð meistaraflokkur kvenna silfurlið bæði í Powerade- og Lengjubikarnum auk þess að verða Meistari meistaranna. Tímabilið 2011-2012 sinnti Hrafn þjálfun meistaraflokks og unglingaflokks karla. Meistaraflokkur félagsins endaði í öðru sæti Iceland Express deildar og féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins og Poweradebikarsins á meðan unglingaflokkurinn tryggði sér bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar þakkar Hrafni innilega vel unnin störf, óskar velfarnaðar og sér eftir kröftum hans. Ákvörðunin er tekin í sátt og mun Hrafn í kjölfarið vera í ráðgefandi hlutverki við stjórn deildarinnar. Stjórn körfuknattleiksdeildar KR mun í framhaldi hefja vinnu við ráðningu þjálfara og er áætlað að þeirri framkvæmd ljúki fyrir 1. ágúst.

F.h. stjórnar

Böðvar Eggert Guðjónsson

Formaður KKD KR“

Yfirlýsing Hrafns:

„Að sinna stöðu aðalþjálfara meistaraflokksliðs KR er að mínu viti stærsta og mikilvægasta starf sem maður getur unnið í körfuboltanum hérlendis. Það er hlutverk sem maður tekur ekki að sér nema sjá sér fært að sinna því af þeim metnaði og einbeitingu sem það starf á skilið. Þegar ég og stjórn deildarinnar settumst aftur niður til viðræðna í byrjun júlí eftir sumarfrí var ljóst að mínar aðstæður og forsendur höfðu breyst töluvert frá því í lok síðasta tímabils. Ég er nýkominn í nýtt og áhugavert starf sem ég hef sömuleiðis metnað fyrir og þarfnast athygli minnar. Það var eðlilegt að þær breyttu forsendur spiliðu inn í þegar lagst var yfir framhaldið.

Það er margt sem bærist í manni þegar ákvörðun sem þessi er tekin en efst er mér eðlilega í huga þakklæti fyrir árin tvö sem að baki eru. Palli og Böddi komu flestum á óvart, mér meðtöldum, þegar þeir gáfu mér tækifærið á að ganga í þetta draumahlutverk og í KR hef ég upplifað stærstu stundirnar á þjálfaraferlinum hingað til. Erfiðast er að sleppa hendinni af drengjunum sem skipa að mínu mati skemmtilegasta og mest spennandi leikmannahóp á landinu í aðdraganda komandi tímabils. Ég mun auðvitað hafa samband við leikmenn hvern og einn persónulega en vil samt nýta tækifærið hér og þakka þeim innilega samstarfið.

Ég verð stjórninni innan handar varðandi málefni meistaraflokksliðsins í framhaldinu og sé svo til hvað við tekur í vetur. Eftir 11 ára samfellt starf sem aðalþjálfari í meistaraflokki er sjálfsagt ágætt að breyta aðeins um takt, sinna annars konar verkefnum, bæta við sig þekkingu í fræðunum o.s.frv. Það er aldrei að vita nema maður taki svo að sér eitthvað annars konar hlutverk í þjálfuninni í vetur, maður losnar aldrei endanlega við þessa bakteríu sýnist mér.

Að lokum vil ég þakka þeim sem öllu máli skipta, KR-ingum í stúkunni og starfsfólki félagsins, fyrir árin tvö.

ÁFRAM KR!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert