Neuer í hópnum en enginn Götze

Manuel Neuer.
Manuel Neuer. AFP

Manuel Neuer landsliðsmarkvörður Þjóðverja í knattspyrnu og leikmaður Bayern München er í 27 manna landsliðshópi Þjóðverja sem tilkynntur var í dag.

Neuer, sem er fyrirliði þýska landsliðsins, hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðan í september og það er enn óvíst hvort hann verði valinn í lokahópinn sem spilar á HM.

Mario Götze, sem tryggði Þjóðverjum heimsmeistaratitilinn í Brasilíu fyrir fjórum árum, hlaut ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans Joachim Löw, sem valdi einn nýliða í hópinn, framherjann Nils Petersen, leikmann þýska liðsins Freiburg.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert