Tómas verður með í kvöld

Tómas Heiðar Tómasson.
Tómas Heiðar Tómasson. Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Tómas Heiðar Tómasson hefur jafnað sig af ökklameiðslum og verður með Stjörnumönnum í kvöld þegar þeir taka á móti Grindavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í Ásgarði.

Tómas meiddist í þriðja leik Stjörnunnar og ÍR í átta liða úrslitunum og fór af velli en hann sneri sig á ökkla. Hann staðfesti við karfan.is í dag að ekki hefði verið um slæm meiðsli að ræða og hann væri klár í slaginn í kvöld.

Viðureign Stjörnunnar og Grindavíkur hefst klukkan 19.15 og verður í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert