Emil Barja genginn til liðs við KR

Emil Barja.
Emil Barja. mbl.is/Árni Sæberg

Körfuknattleiksmaðurinn Emil Barja er genginn til liðs við Íslandsmeistara KR frá Haukum en þetta var kynnt á blaðamannafundi í Vesturbænum rétt í þessu.

Emil hefur allan sinn feril leikið hjá Haukum og verið lykilleikmaður og fyrirliði liðsins sem komst alla leið í úrslit á Íslandsmótinu í vor en tapaði einmitt gegn KR. Emil skoraði 9,1 stig, tók 6,1 frákast og átti 4,6 stoðsendingar að meðaltali í Dominos-deildinni á síðustu leiktíð.

Emil varð samningslaus fyrr í sumar og ákvað að semja við Íslandsmeistarana sem fá mikinn liðsstyrk. Hann hefur verið viðloðandi íslenska landsliðshópinn undanfarin ár en ekki spilað A-landsleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert