Góð byrjun hjá Jakobi

Jakob Örn Sigurðarson byrjar vel.
Jakob Örn Sigurðarson byrjar vel. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jakob Örn Sigurðarson og liðsfélagar hans hjá sænska körfuboltaliðinu Borås unnu sannfærandi 113:83-heimasigur á Uppsala í fyrstu umferð efstu deildar sænska körfuboltans í kvöld. 

Íslendingurinn átti fínan leik fyrir Borås og skoraði tólf stig, tók eitt frákast og gaf fjórar stoðsendingar á rétt rúmum 19 mínútum. 

Jakob er á sínu fjórða tímabili með Borås og hefur hann leikið í Svíþjóð samfleytt síðan 2009, fyrst með Sundsvall. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert