Flottur leikur Martins í sigri

Martin Hermannsson
Martin Hermannsson Ljósmynd/FIBA

Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir Alba Berlín sem vann öruggan 115:76-heimasigur á Crailsheim í A-deild Þýskalands í körfubolta í kvöld. 

Martin skoraði 14 stig á 22 mínútum og tók auk þess tvö fráköst. Hann nýtti tvö af þremur tveggja stiga skotum sínum, sem og tvö af þremur þriggja stiga skotum sínum. Hann setti svo niður fjögur af fimm vítaskotum.

Alba Berlín hefur farið vel af stað á leiktíðinni og unnið báða leiki sína til þessa í deildinni, komist áfram í bikarnum og unnið einn af tveimur leikjum sínum í Evrópubikarnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert