Ætluðum að vera „vondir aftur eins og í fyrra“

Matthías Sigurðarson, leikmaður ÍR, skoraði þriggja stiga körfu á lokasprettinum í leik hans manna gegn Njarðvík í Dominos-deildinni í körfuknattleik í kvöld sem kom á ögurstundu og lagði í raun grunn að sigri liðsins í framlengdum leik. 

Matthías sagði að það hefði verið ákveðinn vendipunktur þegar einmitt hann setti niður þennan þrist undir lok leiksins. Matthías sagði að sóknarfráköst liðsins og nokkuð þéttur varnarleikur hafi vegið þungt að lokum. Matthías sagði slíka leiki ekki hafa verið að falla með þeim í vetur og því var þetta kærkomið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert