Anthony Davis skoraði 42 stig

Anthony Davis sækir að körfu Phoenix en til varnar er …
Anthony Davis sækir að körfu Phoenix en til varnar er Deandre Ayton. AFP

Anthony Davis fór á kostum í nótt þegar Los Angeles Lakers vann óvæntan sigur á Phoenix Suns 123:110 í NBA-deildinni í körfuknattleik í LA. 

Sigurinn var óvæntur því Lakers var án LeBron James og Dennis Schröder. Davis skoraði 42 stig, tók 12 fráköst, varði þrjú skot frá andstæðingum og stal boltanum þrívegis af þeim en sjálfur var Davis á sjúkralistanum fyrir ekki löngu síðan. 

Los Angeles Clippers gekk ekki eins vel í borg englanna og tapaði á heimavelli fyrir New York Knicks 100:106. Gamla kempan Derrick Rose skoraði 25 stig og hefur reynst Knicks vel í vetur. Kawhi Leonard var stigahæstur hjá Clippers með 29 stig. 

Úrslit: 

Boston - Miami 124:130
LA Clippers - New York Knicks 100:106
Charlotte Hornets - New Orleans Pelicans 110:112
Cleveland Cavaliers - Dallas Mavericks 97:124
Orlando Magic - Minnesota Timberwolves 96:128
Detroit Pistons - Chicago Bulls 96:108
LA Lakers - Phoenix Suns 123:110
Sacramento Kings - Oklahoma City Thunder 126:98

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert