Njarðvíkingar sannfærandi í fyrsta leik

Njarðvíkingar eru komnir yfir gegn Þórsurum.
Njarðvíkingar eru komnir yfir gegn Þórsurum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Njarðvík vann í kvöld heimasigur, 87:73, á Þór frá Þorlákshöfn í fyrsta leik úrslitakeppninnar á Íslandsmóti karla í körfubolta.

Njarðvík lagði grunninn að sigrinum með góðum fyrri hálfleik, en staðan eftir hann var 51:38.

Þórsarar minnkuðu muninn aðeins í þriðja leikhluta og var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 67:57. Njarðvík hleypti Þór hins vegar ekki nær sér og fagnaði sannfærandi sigri.

Dwayne Lautier-Ogunleye skoraði 28 stig fyrir Njarðvík. Þorvaldur Árnason gerði 17. Nigel Pruitt skoraði 16 fyrir Þór. José Medina gerði 13.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert