Þrenna Lewandowskis í endurkomusigri

Robert Lewandowski fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld.
Robert Lewandowski fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld. AFP/Lluis Gene

Robert Lewandowski skoraði þrennu fyrir Barcelona þegar liðið lagði Valencia að velli, 4:2, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Börsungar eru í öðru sæti með 73 stig, 11 stigum á eftir toppliði Real Madríd.

Fermín López kom heimamönnum í Barcelona í forystu um miðjan fyrri hálfleik áður en Valencia sneri við taflinu og komst í 1:2 með mörkum frá Hugo Duro og Pepelu úr vítaspyrnu.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Giorgi Mardashvili í marki Valencia beint rautt spjald fyrir að handleika knöttinn utan vítateigs.

Staðan var 1:2 í hálfleik en í þeim síðari sá Lewandowski til þess að Börsungar tækju öll þrjú stigin með því að skora þrennu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert