Landsliðsmaðurinn sterkur í Hollandi

Styrmir Snær Þrastarson lék vel.
Styrmir Snær Þrastarson lék vel. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrmir Snær Þrastarson, landsliðsmaður í körfubolta, átti góðan leik fyrir belgíska liðið Belfius Mons í 78:66-útisigri liðsins á Den Helder frá Hollandi í kvöld.

Var leikurinn liður í sameiginlegri efstu deild Hollands og Belgíu. Styrmir skoraði 14 stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar fyrir sitt lið á 27 mínútum.

Belfius Mons er í þriðja sæti af 10 liðum í neðri hluta deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert