Grindavíkurstúlkur komnar í 2:0

Danielle Rodriguez
Danielle Rodriguez Árni Sæberg

Grindavík gerði góða ferð norður til Akureyrar og unnu heimakonur í Þór 101:85 í 8-liða úrslitum úrvalsdeildar kvenna í körfubolta.

Grindavík leiðir einvígið með tveimur sigrum gegn engum og geta tryggt sæti sitt í undanúrslitum þegar liðin mætast í Smáranum á þriðjudaginn kemur.

Danielle Rodriguez skoraði 28 stig, tók 5 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Grindavík en Madison Sutton var atkvæðamest í liði Þórs með 27 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert