Glitnir eignast Fischer Partners að fullu

Glitnir hefur lokið kaupum á öllum hlutum í sænska verðbréfafyrirtækinu Fischer Partners Fondkommission. Kaupin hafa verið formlega samþykkt af Fjármálaeftirlitinu á Íslandi og sænska fjármálaeftirlitinu.

Í fréttatilkynningu kemur fram að kaupin á Fischer Partners munu styrkja starfsemi Glitnis á norrænum verðbréfamarkaði en Fischer Partners var með 4,4% markaðshlutdeild á norræna verðbréfamarkaðnum utan Íslands á fyrsta ársfjórðungi 2006 sem gerir Fischer Partners að sjötta stærsta verðbréfafyrirtæki Norðurlanda.

Karl Otto Eidem mun taka að sér að gegna starfi framkvæmdastjóra Fischer Partners en hann starfaði áður sem forstöðumaður greiningardeildar Glitnis í Noregi.

Að sögn Bjarna Ármannssonar, forstjóra Glitnis, í fréttatilkynningu, munu Glitnir og Fischer Partners mynda sterka heild á norrænum verðbréfamarkaði.

„Kaupin styrkja stöðu Glitnis í Svíþjóð og Noregi og gefa Glitni tækifæri á frekari vexti á norræna markaðnum. Fischer Partners er góð viðbót við okkar starfsemi og í samræmi við áætlanir Glitnis um vöxt enda fyrirtækið með sterka markaðshlutdeild og öfluga viðskiptavini. Við stefnum að því að efla fyrirtækið enn frekar sem leiðandi verðbréfafyrirtæki á Norðurlöndunum.“

Fischer Partners er aðili að kauphöllunum í Stokkhólmi, Helsinki, Ósló, Kaupmannahöfn, Tallin, Riga, Varsjá og afleiðumarkaðinum Eurex í Þýskalandi. Á fyrsta ársfjórðungi 2006 var Fischer Partners fjórði stærsti hlutabréfamiðlarinn í Kauphöllinni í Stokkhólmi með 5,7% markaðshlutdeild.

Fyrirtækið var auk þess sjötti stærsti hlutabréfamiðlarinn í norrænu kauphöllunum með 4,4% markaðshlutdeild af samanlagðri veltu. Fischer Partners stundar rafræn hlutabréfaviðskipti, hefðbundin verðbréfaviðskipti og viðskipti með eigin verðbréf. Viðskiptavinir eru aðallega alþjóðleg og sænsk fyrirtæki og stofnanir auk fjársterkra einstaklinga sem eru virkir í verðbréfaviðskiptum.

Fischer Partners

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK