Veltan á fasteignamarkaði 4,6 milljarðar

mbl.is

Alls var 45 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 11. desember til og með 17. desember 2009. Þar af var 31 samningur um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.603 milljónir króna og meðalupphæð á samning 102,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 56 milljónir króna og meðalupphæð á samning 9,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 89 milljón króna og meðalupphæð á samning 17,8 milljónir króna. Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Árborgarsvæðinu, að því er segir á vef Fasteignaskrár Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK