53 þéttbýlisstaðir fá ljósnet á árinu

 53 nýir þéttbýlisstaðir fá Ljósnet Símans á árinu. Þegar er unnið að því að uppfæra netið á Akranesi, Keflavík og Njarðvík. Ljósnet á staðina þýðir meiri hraða, öflugra net og bætta sjónvarpsþjónustu fyrir þúsundir landsmanna, segir í tilkynningu frá Símanum.

 Nú þegar geta 62 þúsund fjölskyldur nýtt Ljósnetið og stefnir Síminn að því að heimilin verði 100 þúsund um mitt ár 2014.

 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir í tilkynningu að fyrirtækið sé mjög stolt af því að geta boðið Ljósnetsþjónustuna utan höfuðborgarinnar. „Ljósnetið hefur fengið frábærar viðtökur þar sem það er í boði. Við höfum verið í góðu sambandi við forsvarsmenn fjölmargra sveitarfélaga undanfarna mánuði og það er greinilega mikill áhugi á að fá kraftmeiri tengingar og aðgang að fullri sjónvarpsþjónustu á Sjónvarpi Símans.“

 

Sævar Freyr segir að vegna þess hve vel landsmenn hafa tekið Ljósnetinu hafi verið ákveðið að hraða uppbyggingu þess á landsbyggðinni.

 

„Við vitum hve mikilvægt er fyrir sveitarfélög landsins að sitja ekki eftir á tækniöld, því fjarskipti skipa lykilsess í grósku samfélaga og farsæld fyrirtækja. Við gerum því okkar besta svo fjarskiptin stýri ekki byggðaþróuninni í landinu heldur skapi tækifæri fyrir landsmenn að hasla sér völl þar sem þeir vilja helst.“

 

Hvaða staðir eru þetta? Akranes, Keflavík, Njarðvík, Selfoss, Vestmannaeyjar, Hveragerði, Þorlákshöfn, Garður, Sandgerði, Eyrarbakki, Kjalarnes, Hvolsvöllur, Stokkseyri, Hella og Hafnir. Ísafjörður, Húsavík, Sauðarkrókur, Siglufjörður, Dalvík, Blönduós, Ólafsfjörður og Hrafnagil. Egilsstaðir, Höfn, Neskaupsstaður, Reyðarfjörður, Stykkishólmur, Ólafsvík, Eskifjörður, Bolungarvík, Seyðisfjörður, Grundarfjörður, Vopnafjörður, Fáskrúðsfjörður, Patreksfjörður, Hellissandur, Hvammstangi, Skagaströnd, Vík, Djúpavogur, Flúðir, Þórshöfn, Bakkafjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Búðardalur, Tálknafjörður, Suðureyri, Þingeyri, Flateyri, Bíldudalur og Hnífsdalur.

 

Þegar búið verður að uppfæra þessa staði standa aðeins 1,4% landsmanna án fullrar sjónvarsþjónustu hjá Símanum, nærri helmingi færri en nú.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK