Keyptu 30% í Fáfni

Íslandsbanki við Kirkjusand.
Íslandsbanki við Kirkjusand. mbl.is/Ómar Óskarsson

Akur fjárfestingar, framtakssjóður í rekstri Íslandssjóða, hefur keypt 30% hlut í Fáfni Offshore hf. Fjárfestingin nemur 1.260 milljónum króna.

Félagið sérhæfir sig í þjónustu við olíu- og gasborpalla auk annarra verkefna á norðlægum slóðum. Fyrsta skip félagsins, Polarsyssel, var afhent félaginu í september sl. Það er fyrsta íslenska sérhæfða skipið sem sinnir öryggis- og olíuþjónustu á norðurslóðum. Skipið hefur verið til þjónustu fyrir Sýslumanninn á Svalbarða, samkvæmt fréttatilkynningu.

Fáfnir Offshore hefur gert 6 ára þjónustusamning við sýslumanninn um gæslustörf í sex mánuði á ári. Þá hefur Fáfnir einnig gengið frá samningum við stærsta fyrirtæki Rússlands, Gazprom, um þjónustu við olíuborpall í eigu félagsins sem er staðsettur í Pechora-hafinu.  

Hlutafjáraukningunni í Fáfni Offshore er ætlað að styðja við frekari vöxt félagsins. Fáfnir Offshore hefur fest kaup á öðru skipi sambærilegrar gerðar og Polarsyssel sem nú er í smíðum og verður það afhent um mitt ár 2015. Stefnt er á frekari fjárfestingar en Akur er nú stærsti einstaki hluthafi félagsins en næststærsti hluthafi félagsins er framtakssjóðurinn Horn II, segir ennfremur í tilkynningu.

Akur fjárfestir í óskráðum félögum. Hluthafar í félaginu eru 15 talsins þar af 13 lífeyrissjóðir ásamt VÍS og  Íslandsbanka.  Fjárfestingin í Fáfni Offshore er önnur fjárfesting Akurs og sú stærsta hingað til en félagið fjárfesti fyrr á þessu ári í HSV eignarhaldsfélagi sem á rúmlega þriðjungshlut í HS veitum. Fjárfestingartími Akurs er þrjú til fjögur ár en áætlaður líftími sjóðsins er átta til tíu ár og er fjárfestingageta félagsins 7,3 milljarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK