Spara mikið eldsneyti með stærri skrúfu

„Talið er að um 80% af allri orkunotkun skipsins fari …
„Talið er að um 80% af allri orkunotkun skipsins fari í að knýja skrúfuna en útreikningar okkar og mælingar sýna að fimm metra skrúfan er á bilinu 30-40% sparneytnari en þriggja metra skrúfa,“ segir Rakel Sævarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ný skipaskrúfa var tilnefnd til hvatningarverðlauna SFS á dögunum. Það er skipaverkfræðistofan Skipasýn sem stendur að hönnuninni í samstarfi við Hraðfrystihúsið Gunnvöru og Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum.

Rakel Sævarsdóttir, verkefnastjóri hjá Skipasýn, segir hugmyndina í sjálfu sér ekki nýja af nálinni. „Sævar Birgisson, verkfræðingur hjá stofunni, hefur í mörg ár verið að mæla fyrir því að settar væru stærri skrúfur á skipin. Svo virðist sem olíuverð hafi ekki verið nógu hátt til að skapa nægilega sterkan hvata fyrir útgerðir til að taka stökkið og prófa nýja hönnun.“

Að sögn Rakelar er ljóst að stærri skrúfa skilar mun betri eldsneytisnýtingu. „Síðast stækkuðu skipsskrúfurnar í olíukreppunni á áttunda áratugnum og fóru úr tveimur metrum í þvermál upp í þrjá metra. Með nýju skrúfunum sem Skipasýn hefur hannað er farið úr þremur metrum upp í fimm.“

Stóra skrúfan verður notuð á tveimur fimmtíu metra togurum sem eru núna í smíði í Kína, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í ViðskiptaMogganum í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK