Hard Rock tryggir sér Iðuhúsið

Hard Rock ætlar að opna í Iðuhúsinu.
Hard Rock ætlar að opna í Iðuhúsinu. Skjáskot af ja.is

Bókaversluninni Iðu við Lækjargötu 2A verður lokað um áramótin og veitingastaðurinn Hard Rock kemur þar inn í staðinn. Þetta var endanlega staðfest í morgun.

Arn­dís B. Sig­ur­geirs­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Iðu, er þegar byrjuð að hreinsa út úr búðinni en afsláttur verður á öllum vörum fram til áramóta. 

Þrátt fyrir að ætla að loka um áramótin gerir hún ráð fyrir að taka sér nokkra daga á nýju ári til þess að rýma húsnæðið. Þær vörur sem eftir standa verða ýmist færðar í verslun Iðu Zimsen við Vesturgötu 2A eða Mál og Menningu, en verslanirnar eru í eigu sömu aðila.

Þá munu starfsmenn fá vinnu á öðrum hvorum staðnum og engar uppsagnir fylgja því breytingunni.

Keyptu sig inn í leigusamninginn

Iða var með leigusamning til sex ára í húsinu en Arndís segir Hard Rock hafa keypt sig út úr samningnum. Líkt og mbl hefur áður greint frá renna leigu­samn­ing­ar kaffihússins Mezzo og pítsustaðarins, Sbarro, á eftir hæðinni út í vor.

Hard Rock hef­ur um nokkurn tíma haft mik­inn áhuga á að opna á Íslandi. Fyrr á árinu tryggði fjár­fest­ir­inn og einn eig­enda Dom­in­o's Pizza, Birg­ir Þór Biel­vedt, sér leyfi fyr­ir staðnum hér á landi.

Horfir jákvæð á breytingarnar

„Við erum alveg opin fyrir því að opna annars staðar í bænum,“ segir Arndís aðspurð um framhaldið en bætir með að hún muni einbeita sér að Iðu Zimsen til þess að byrja með. „Það er kominn tími til þess að hleypa öðrum að eftir ellefu ára veru hérna,“ segir hún. 

„Hér hefur verið frábært og þessu fylgja blendnar tilfinningar. En svona er lífið stundum,“ segir hún. „Þetta er stór breyting en maður verður bara að horfa jákvætt á það.“

Fréttmbl.is:HardRock sýnir rekstri Iðu áhuga

Hard Rock var í Kringlunni en var lokað árið 2005.
Hard Rock var í Kringlunni en var lokað árið 2005. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK