Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air. Undir viðskiptasvið mun heyra sala, markaðssetning, þjónusta og tekjustýring.
Hann starfaði áður hjá Arion banka sem forstöðumaður stafrænnar framtíðar. Þetta er í annað sinn sem Tómas kemur til liðs við WOW air en árið 2014 starfaði hann sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs WOW air. Á árunum 2011 til 2013 starfaði Tómas sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn. Áður leiddi Tómas tekjustýringu og verðlagningu hjá Icelandair.
Tómas hefur-MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston en auk þess hefur hann lokið MS-gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur. Tómas er með BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Á sama tíma lætur Engilbert Hafsteinsson af störfum hjá félaginu. Engilbert starfaði síðast sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs og hefur verið hjá félaginu í 5 ár.