Kvika komin á markað

mbl.is/Eggert

Viðskipti með hlutabréf í Kviku banka hófust í dag á First North Iceland. Kvika er fyrsti bankinn sem er skráður á markað á Íslandi frá fjármálakreppunni.

Þetta kemur fram í tillkynningu frá Kauphöllinni. Þar segir að félagið sé það fyrsta sem er tekið til viðskipta á Nasdaq Iceland í ár. 

Kvika er viðskiptabanki sem leggur áherslu á fjárfestingabankastarfsemi. Tekjusvið bankans eru eignastýring, fyrirtækjaráðgjöf, fyrirtækjasvið og markaðsviðskipti.

Haft er eftir Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, að skráningin hafi verið rökrétt skref þar sem undanfarið hafi verið mikill áhugi á hlutabréfum í bankanum og framtíðaráætlunum hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK