Vilja kaupa fyrir milljarða á Vínlandsleið

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reitir fasteignafélag hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við eigendur Vínlandsleiðar ehf., um kaup Reita á félaginu.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að heildarvirði kaupanna sé samtals 5.900 milljónir króna og að þau verði að fullu fjármögnuð með handbæru fé, lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda.

Um er að ræða rúmlega 18.000 leigufermetra af húsnæði. Þessar fasteignir eru Vínlandsleið 2-4, 6-8, 12-14 og 16 auk Norðlingabrautar 14. Er metið að kaupin leiði til þess að áætlaður rekstrarhagnaður Reita hækki um 350 milljónir króna á ársgrundvelli.

Eignirnar eru í útleigu til 12 aðila með 100% útleiguhlutfall. 82% leigutekna eru við fimm opinbera aðila eða aðila sem eru á fjárlögum ríkisins; Sjúkratryggingar Íslands, Matís, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Lyfjastofnun og Fjölmennt. Leigutekjur á ársgrunni nema um 440 milljónum króna og er meðaltími leigusamninga um 13,5 ár. 

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki stjórnar Reita á kaupunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK