Sigmar selur í Fabrikkunni og Keiluhöllinni

Sigmar Vilhjálmsson.
Sigmar Vilhjálmsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigmar Vilhjálmsson hefur selt allan hlut sinn í rekstri Keiluhallarinnar í Egilshöll og Hamborgarafabrikkunni. Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi keypti hlut hans, en Sigmar mun áfram stýra Keiluhöllinni og veitingastaðnum Shake & Pizza út þetta ár. Hann segist tilbúinn að skoða nýja bransa í framhaldinu.

Í samtali við mbl.is segir Sigmar að ærin verkefni séu framundan, en hann sé tilbúinn að skoða nýja hluti. DV greindi fyrst frá sölunni í morgun, en Sigmar staðfestir við mbl.is að hann hafi selt hluti sína um miðjan aprílmánuð.

Sigmar hafði átt í Keiluhöllinni ásamt Jóhannesi Ásbjörnssyni, Snorra Marteinssyni, Jóhannesi í Múlakaffi og Guðmundi Auðunssyni. Var eignarhaldið í gegnum félagið Gleðipinnar ehf. Sigmar var svo eigandi að Hamborgarafabrikkunni í gegnum Nautafélagið ehf. ásamt þeim Jóhannesi Ásbjörnssyni, Snorra og Skúla Gunnari Sigfússyni í Subway.

Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ábjörnsson hafa verið andlit Hamborgarafabrikkunnar gegnum …
Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ábjörnsson hafa verið andlit Hamborgarafabrikkunnar gegnum tíðina. Þá hafa þeir verið í öðrum viðskiptum saman líka, en nú skilja leiðir á viðskiptasviðinu.

Seldu þeir Sigmar, Jóhannes Ásbjörnsson og Snorri hluti sína í Nautafélaginu til Gleðipinna og hafa þeir Sigmar og Snorri nú selt Jóhannesi í Múlakaffi hluti sína sem er í dag meirihlutaeigandi þess félags.

Sigmar segir að með þessu eigi hann og Jóhannes Ásbjörnsson ekki lengur fyrirtæki saman, „við eigum bara vináttuna,“ segir hann. Þó hafi þeir verið í einhverjum fjölmiðlaverkefnum saman og útilokar hann ekkert í þá veruna síðar meir. Sem fyrr segir mun Sigmar stýra Keiluhöllinni til áramóta en svo tekur við nýr kafli. „Ég mun klárlega horfa til nýrra verkefna upp úr áramótum. Mun gefa mér tíma í það, en ég er tilbúinn að skoða aðra bransa og nýja hluti,“ segir Sigmar hress og bætir við: „Það verður áhugavert að sjá hvaða vitleysu maður tekur að sér næst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK